22.9.2010 | 15:45
Engin ástæða til að ýta undir verðhækkanir
Því er slegið hér upp að við eigum von á verðbólguskoti. Takk fyrir - ef einhverjir hafa verið tvístígandi um að hækka verð sín, þá er hér með búið að hvetja enn frekar til þess.
Ef brauð hækka um 8,1% er eina svar neytenda að minnka við sig brauðát.
Ef landbúnaðargeirinn boðar hækkun lambakjöts vegna mikillar eftirspurnar erlendis, þá ætlum við ekki að standa í vegi fyrir útrásinni í lambakjötinu og skiptum yfir í aðra matvöru.
Markaðurinn getur snúist til varnar gegn boðuðum verðbólguskotum - og það eigum við að gera.
Ýtir upp verðvísitölunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.9.2010 | 12:16
Éttann sjálfur!
Fjármálaráðherra Íslendinga er stundum orðljótur og á það til að böðlast um í þingsal. "Éttann sjálfur" er eitt af minnisstæðum framígripum Steingríms á löggjafarþinginu.
Það er ekki við hæfi að forseti Alþingis "kói með" honum og dreifi málinu með því að biðja "þingheim í heild" að gæta orða sinna. Á vinnustöðum og í skólum er talað beint við þann sem hagar sér illa og þarf að atyrða.
Og skammastu þín Árni Johnsen | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2010 | 14:24
Skilnaður lista, stjórnvalda og atvinnulífs?
Nú er í tísku hjá listafólki að aðgreina sig framáfólki í atvinnulífi og stjórnmálum.
Tilgangurinn með samkrulli við atvinnulíf og stjórnmál hér áður var kannski að fá gott veður um fjárveitingar, stuðning og aðstöðu. Settir voru peningar í menninguna, fjármögnuð gallerí, sýningar og annað í þeim dúr.
Núna hefst kannski nýtt tímabil, þar sem listin stendur á eigin fótum, óháð og sjálfstæð frá áhrifum stjórnmála, skattpeninga eða fjármálamanna?
Engir ráðamenn í hlutverki á Grímunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.4.2010 | 12:49
Árni talar íslensku
Samúð lesenda Morgunblaðsins er hjá fólkinu sem hefur barist í bökkum og missir núna allt. Það er skömm að sú ríkisstjórn sem hafði umsjón með endurreisn bankanna skuli kenna sig við norræna velferð.
Verið að fremja níðingsverk í bönkunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2010 | 08:26
Aðeins "milljónir"?
Kyrrsetning einhverra hundraða milljóna virðist nú ekki mikið í ljósi tuga og hundraða milljarða sem þessir herramenn hafa verið að sýsla með. Verður þetta aðeins kattaþvottur?
Eignir Jóns Ásgeir og Hannesar kyrrsettar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.4.2010 | 20:56
Vanræksla stjórnvalda til rannsóknar?
Ef stjórnvöld hafa sýnt vanrækslu í að taka á þessum málum liggur beint við að sú vanræksla verði tekin til rannsóknar af næstu rannsóknarnefnd, ef sú núverandi sleppir henni í skýrslunni á mánudag.
Næg tilefni hafa verið til kyrrsetninga meðan rannsóknir stæðu yfir - og það er komið á annað ár síðan fyrstu ábendingar komu fram í fjölmiðlum um að frysta eignir.
Eignir auðmanna frystar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.3.2010 | 16:19
Frábært! Hvað segir Stefán Ólafsson?
Það er gott að heyra að við stöndum okkur vel í þessum efnum, með 10% þjóðarinnar í fátækt. Var prófessor Stefán Ólafsson ekki einmitt búinn að gera úttekt á þessu?
Glæsileg niðurstaða - eins og maðurinn í velferðarstjórninni sagði hér um árið.
Tíu prósent undir tekjumörkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2010 | 14:19
Af hverju voru lögin ekki einfaldlega felld úr gildi?
"Ríkisstjórnin hefði viljað aflýsa þjóðaratkvæðagreiðslunni. Forsætisráðherrann hefur þegar lýst því yfir að hún ætli ekki að kjósa," segir Dymond í stuttri fréttaskýringu á vef BBC.
Þá hefði ríkisstjórarmeirihlutinn á alþingi einfaldlega átt að fella lögin úr gildi, sem kosið er um í dag.
Af hverju var það ekki gert?
Skrítin þjóðaratkvæðagreiðsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.3.2010 | 15:05
Eru stjórnvöld að nýta þetta tækifæri?
Mikill áhugi erlendra fjölmiðla á þjóðaratkvæðagreiðslunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2010 | 00:23
Gengið óbreytt sl. 9 mánuði - samt verðbólga?
Gengi krónunnar gagnvart evru og USD hefur verið nánast óbreytt frá því í júní í fyrra, eða í 9 mánuði.
Samt eru innfluttar vörur enn að hækka. Og verðbólgan þar með meiri en annars væri.
Spá 5% samdrætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |