17.10.2011 | 11:18
..en 63% landsmanna búa á höfuðborgarsvæðinu
55% allra brota eru á höfuðborgarsvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2011 | 17:51
Evrópureglur eiga ekki við
Orka gömlu glóperanna fer ekki til spillis í híbýlum N-Evrópu og hér á Íslandi, því það sem ekki verður að ljósi nýtist í staðinn til óbeinnar hitunar. Okkur verður ekki gefinn kostur á að velja glóperur lengur, en verðum í staðinn að nota mengandi og dýrari kvikasilfursperur, sem að auki gefa kaldari birtu í skammdeginu en hlýlegt ljós glóperanna.
Hér er enn eitt dæmið um að "sama regla skuli ganga yfir alla" í Evrópu. Annað dæmi eru heimilistæki sem eiga að spara vatn, sbr. klósettin með spartökkunum sem gutla niður handónýtri sprænu í hálffrosið klóakið meðan hér er ofgnótt af vatni. Þriðja dæmið (sem ég hef þó ekki staðfest hvort tengist Evrópureglum) er að ekki fást þvottavélar eða uppþvottavélar sem taka inn á sig heitt vatn, eins og til er í N-Ameríku. Hér er tíma og orku eytt í að hita þvott upp með rafmagni í stað þess að nota náttúrulega heita vatnið sem við búum við.
Þurfum við að taka allar þessar reglur upp án nokkurrar hugsunar?
Ljósaperur þrefaldast í verði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.12.2010 | 20:36
Lægri hvað??
Í fréttinni er ekkert fjallað nánar um það sem fyrirsögnin segir. Var meðalupphæð samnings, 26,4 Mkr., lægri en það sem var í síðasta mánuði? Eða það sem var á sama tíma í fyrra? Hversu mikið lægri? Var þá fermetraverðið lægra, eða voru einfaldlega minni eignir seldar núna?
Lægri meðalupphæð á samning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2010 | 15:58
Þá var það ekki xD sem braut reglur??
Skv. fréttinni sendi Sjálfstæðisflokkurinn nafnalista til þriðja aðila, til þess að senda eftir, og sá listi innihélt ekki þá sem voru með bannmerki. Hins vegar notaði þessi þriðji aðili ekki listann, heldur tók upp sinn eigin lista og þess vegna fór sem fór. Það er því erfitt að sjá hvernig fyrirsögn fréttarinnar standist, þ.e. að Sjálfstæðisflokkurinn hafi brotið reglurnar.
En ef flokkurinn tekur þetta á sig, þá er það hans mál og kannski meira en aðrir hefðu gert.
Sjálfstæðisflokkurinn braut reglur um markpóst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.12.2010 | 15:03
Engilsaxnesku genin?
Fjórða feitasta Evrópuþjóðin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2010 | 16:21
1,2 Mkr. á meðalfjölskyldu
Hundrað milljarða aðgerðaáætlun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2010 | 16:18
Skynsamlegt
HSÍ sækir ekki um EM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2010 | 15:12
Og...?
Þessar tilkynningar um kaupsamninga undanfarnar vikur eru orðnar fastur póstur á mbl.is og virðast vera "copy-paste" úr einhverjum stöðluðum fréttatilkynningum, trúlega fasteignasala.
Þetta er í sjálfu sér allt í lagi, en hefur lítið sem ekkert fréttagildi flestum lesendum. Eru 62 kaupsamningar mikið eða lítið? Fer þeim fækkandi eða fjölgandi? Hvað má lesa út úr þessum tölum og upplýsingum? Vinsamlegast setjið lágmarksvinnu í fréttina svo að hún hafi eitthvert gildi!
62 kaupsamningum þinglýst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.11.2010 | 12:05
Til Reykjavíkur eða Íslands?
Var þetta fjöldi ferðamanna til Íslands eða aðeins Reykjavíkur? Voru svo einhver þúsund til viðbótar sem sigldu til Akureyrar, Hafnarfjarðar og víðar?
68.000 komu með skemmtiferðaskipum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2010 | 12:18
Hækkun lána meðtalin?
Ætli þessar tölur taki líka til þess að lán heimilanna, og afborganir af þeim, hafa hækkað - hvort heldur eru vísitölubundin eða gengisbundin? Með hliðsjón af þeim er trúlegt að ráðstöfunartekjur og kaupmáttur þeirra hafi rýrnað mun meira.
Moggi - gætir þú upplýst okkur betur?
Kaupmáttur 15,5% minni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |